Á árinu 1966 - 1967 í “Point Pleasant” í vestur virginíu í bandaríkjunum gerðust furðulegir atburðir. Á einu ári tilkynntu nánast 100 manns til lögreglu að þeir hefðu séð furðulega veru sem líktist grárri eða brúnni “mannveru” með vængi og rauð glóandi augu.
Allstaðar sem veran sást áttu furðulegir hlutir sér stað, símar hringdu og furðuleg “vélræn rödd” heyrðist í símtólinu, sjónvörp og útvörp duttu út og það drapst á bílum úti á miðri götu án neinnar sýnilegrar ástæðu. Búfénaður fannst dauður liggjandi á víð á dreif, furðuleg ljós birtust á himninum og furðuleg öskur heyrðust osfrv.
Allir þessir atburðir skyndilega hættu svo á sama tíma þegar brú hrundi og um 40 manns frá bænum létust. Margir telja að þessi vera hafi verið einhverskonar fyrirboði fyrir þessar hörmungar.
Það er búið bæði að gera kvikmynd um þetta og skrifa margar bækur.