Mér finnst það svo skrýtið sem vin minn dreymir rosalega oft. Þetta eru allt draumar þar sem hann kemst að því að hann sé alvarlega veikur, t.d. með heilaæxli, krabbamein o.fl. Svo einu sinni dreymdi hann að hann hefði skotið sjálfan sig. Og svo var einn draumur þar sem hann lá í rúmi og allt í einu sá hann að það stóðu naglar gegnum allar tærnar og það var ógeðslega sárt. Svo hafa verið fullt af öðrum svona draumum sem ég veit reyndar ekki hvernig voru. En mér finnst þetta geðveikt skrýtið, sérstaklega þar sem draumar af þessu tagi eru svo margir.
Svo er líka eitt, ég hélt að það væri ekki hægt að finna sársauka í draumum nema maður væri í rauninni að meiða sig eitthvað, t.d. rekast í. En vinur minn fann semsagt alveg rosalega mikinn sársauka þegar þessir naglar stungust gegnum tærnar.
Það væri mjög fínt ef einhver gæti sagt mér hvað þessir draumar gætu merkt.