tryggð?
Mig dreymdi að kona frænda míns hafi hringt í mig og sagt að litli hundurinn þeirra væri týndur inni í íbúðinni þeirra. Þau vildu að ég kæmi að leita að litla hvolpinum. Þetta er pommeranian hundur sem þau eiga en þarna var önnur tegund sem ég var að leita að. Ég heyrði væl bakvið eitt barnarúmið og leit bakvið. Þar horfði lítill hvolpur á mig, með stór brún bænaraugu og vildi að ég hjálpaði sér því hann var fastur. Hann var brúnn og hvítur. Ég man að ég tók hann upp og faðmaði að mér…draumur því miður á enda. Þýðir ekki tryggð að dreyma hund?