Mig dreymdi að ég væri í vikuveiðiferðinni sem ég er nýbúin að vera í. Annað fólk átti að fá veiðihúsið daginn eftir, en þegar við ætluðum í bíltúr daginn áður, þá bara birtist fólkið strax á staðinn og yfirtók húsið. Við hættum við að fara í bíltúrinn og pössuðum uppá dótið okkar. Fólkið fór bara að nota okkar dót og fékk sér að borða ofl, bara eins og við værum ekki á staðnum. Ein stelpa stal mínu rúmi og alltaf var klósettið upptekið af þeim. Mér var eitthvað illt í öllum neðri góm þar sem vírinn á bakvið (eftir gamlar tannre´ttingar) var að losna og tennurnar bara róluðu uppí mér. Rosalega var þetta vont þar sem ég var alltaf að gá hvort að tennurnar væru nokkuð að detta úr mér (hef lesið að það sé ekki fyrir góðu að missa tennurnar :( ) svo allt í einu er ég komin til Kína!!!! Éger að vinna með stelpu semer frá Filippseyjum ,en þarna var hún orðin Kínversk. Ég gekk með henni á gangstéttum Kína og gangste´ttirnar voru flæðandi af vatni og við grípandi gullfiska úr vatninu. Sally (filippeyska stelpan) átti afmæli í þessum draumi (hún á bráðum afmæli) og við gengum þvert yfir götuna og heim til hennar. Þar fékk hún einhverja óvenjulega afmælisgjöf. Allt í einu koma tvær eldri frænkur mínar inn og ég spyr þær hvaða erindi þær eigi í Kína!!!!! Svo sé ég út úr húsinu að það eru fullt af tívolítækjum í gangi og hlutar af tækjunum snerta næstum jörðina, en ekkert slys verður þarsem tækið fer mjög hægt. Þetta var langur og skemmtilegur draumur að hluta en rosa var ég fegin að vakna með tennurnar fastar í mér og vírinn fastan bakvið neðri tennur!!!! Þetta var það raunverulegt að ég gáði hvort tennurnar væru enn þarna :D ahaha