Halló, gaman að geta svarað þessu:)
Jamal þýðir fegurð á arabísku og er arabískt karlmannsnafn.
Þá veistu það:)
Í Bahai trúnni kemur þetta orð svo líka fyrir, þar sem þeir trúa líka á Múhameð og hafa arabísk nöfn í dagatalinu sínu, en Jamal er einn af mánuðunum þeirra en hann byrjar 9 Apríl og líkur 28 Apríl. Ég samt efast um að þessi draumur þinn snúist um tímasetningu eða eitthvað.
Ég man ekki meira eftir orðinu Jamal og notkun þess en þetta.
Alla vega, þetta nafn sem þú ert að dreyma þýðir fegurð.
Hlýtur að vera fyrir einhverju góðu, við getum alla vega haft það þannig.
Annars er ég engin draumráðningarkona sko:)
En segðu endilega meira frá þessum draumum…
Thule
Sól