Mig dreymdi að skólinn minn á Akureyri væri aftur byrjaður eftir sumarið og ein kona með mér í bekk, sem alltaf er stutthærð og með svart hár, var komin með hár niður á bak!!!!! Rosalega glansandi og fínt hár. Hún hélt á einhverju 5 ára barni eða aðeins yngra og það barn var skylt mér…hvað getur þetta í ósköpunum þýtt???????????????????????

svo annar draumur um Akureyri. Mig dreymdi að ég væri í bíl með vinkonu minni og við vorum að reyna að finna Bónusverslun þar!!!! Þá var ég hætt að rata þar þótt skólinn minn væri þar og ég búin að vera þar í heilan vetur. Við vorum með kort á okkur minnir mig og allt í einu segi ég:Heyrðu ég man hvar Bónus er, við keyrðum fram hjá því!!!!" ENDIR