Ég svaf fram eftir þar sem skólinn er búin hjá mér og nennti ekki að fara fram úr. Þá rak ég mig í eitthvað alveg á brúninni, ég reis upp og sá að þetta var skúffan úr náttborðinu mínu og ég sá að svona helmingurinn af dótinu úr skúffunni var á gólfinu! Enginn úr fjölskyldu minni gerði þetta þannig ég hlýt að ganga í svefni, en það hefur ekki gerst áður! Ég skil ekkert í þessu, eða kom kanski lítill álfur og var að leita að einhverju?

kv. Amesa