Mig dreymdi að finnsk stelpa sem var með mér í bekk fyrir jól, hefði komið til Íslands í heimsókn til okkar í skólann. Ég heilsaði henni ánægjulega en hún rétt brosti og sneri sér í aðra átt. Svo sé ég að hún faðmar alla hina í bekknum,sérstaklega Eddu sem er eldri en við og gæti verið mamma okkar. Þær fara á kaffihús og vilja ekki hafa mig með. Ég verð afbrýðisöm og labba á Gistiheimilið í snjóhríð og roki. Ég labba framhjá 2 litlum strákum. Ég byrja að hlaupa og er allt í einu komin í kapphlaup við einn strákinn. Hann verður á undan og kemst inn í gistihúsið mitt og fer bara að leika sér. Ég er alltaf að skamma hann og segja honum að hypja sig út. En ekkert dugir.