Guns DO kill people! But then again, so do washing machines!!!
Smá pæling
Fyrir nokkru dreymdi mig að ég kæmi að slysi, þar sem fimm bílar (allir dökkgrænir) hefðu rekist á sjötta bílinn, sem var kóngablár. Ég er lögregluþjónn, og var í búningnum í draumnum, það var engin önnur lögga þarna og ég þurfti að færa bílana alla með handafli til að komast að bláa bílnum. Það var ekki fólk í grænui bílunum, en kona sem ég þekki í gegnum systkini hennar var í bláa bílnum. Þegar ég var búinn að færa alla grænu bílana þurfti ég að velta hennar bíl á hjólin aftur, opna hurðina, lyfta henni upp og halda á henni útfyrir veginn, þar sem ég setti hana niður í grasið og breiddi teppi yfir axlirnar á henni. Það var hellirigning og ég man eftir fjölda fólks sem stóð og horfði á (þar á meðal öll systkini henna og makar þeirra, mamma hennar og pabbi) en enginn gerði neitt. Hefur einhver hugmynd um hvað þetta gæti þýtt?