Veit einhver hvort hægt er að finna draumráðningavef.

En mig dreymdi í nótt draum sem ég held að er ekki hægt að tengja við nýlega atburði í mínu lífi. þar af leiðandi vil ég meina að kannski gæti hann þýtt eitthvað.

Þetta var mjög einfaldur draumur ég var úti að vesenast í ýmsum hlutum og það voru engin tengsl á milli þeirra, t.d. var ég að laga bíl svo allt í einu var ég farinn að klifra yfir grindverk and so on, nema alls staðar voru kóngulær og kóngulóarvefir og vefirnir voru mjög sterkir, það þurfti átak til að slíta þá, og oftar en ekki, við að hreinsa burtu þessa vefi þá stungu kóngulærnar mig og skyldu eftir brodd (sem ég veit að kóngulær gera ekki) en ég gat alltaf tekið hann í burtu.
Þetta var ekki flóknari draumur en þetta, og hann var allur mjög skýr

Held þetta sé frekar táknrænn draumur.
Hvað haldið þið?