HRRRRROOOOÐALEG MARTRÖÖÖÐ!!!!!!!
Guð minn góður ég held að ég verði að fara í messu eða eitthvað kristilegt eftir þessa hræðilegu martröð sem ég fékk, ég vaknaði í sjokki og er enn í sjokki!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Þetta byrjar svona: Ég og mín fjölskylda vorum að leyfa einum ókunnugum manni að gista nokkrar nætur hjá okkur, en það sem við vissum ekki strax var að hann var MISKUNNARLAUSASTI MORÐINGI SEM TIL VÆRI Á JÖRÐU!!!!! Hann var með lítinn sætan son með sér, en ætlaði strax að DREPA HANN!!!!! Hann var svona 4ra ára en maðurinn bað pabba um umbúðir sem hann huldi allan líkama barnsins með. Barnið sat á stól og maðurinn kemur með vélsög og byrjar að saga barnið lóðrétt frá höfði og niður!!!! Það spýttist blóð útum alla veggi og ég sá BARA BLÓÐ! Þetta gerðist í bílskúrnum okkar. Svo fékk pabbi gesti og vildi sýna gestunum blóðsletturnar!!!!! Hann sagði við gestina, stoltur á svip“Hann er ekki lengi að þessu, vefur bara umbúðum um fórnarlömb sín og tætir allt lóðrétt niður frá höfði.” Ég heyrði hann segja þetta og varð bara hrædd! Hissa á pabba mínum að segja svona! Morðinginn sat bara montinn og öruggur með sig og drap allt sem nálægt honum kom. Mér fannst hann alltaf vera eitthvað að labba á eftir mér eða vera nálægt mér og svo vaknaði ég í ÞVÍLÍKU SJOOOKKI!!!!! Sofnaði aftur og SEM BETUR FER dreymdi mig þetta ekki aftur. Ég var svo HRÆDD!!!!!!!