Mig dreymdi að ég væri að fara að biðja aftur um vinnu á gamla staðnum mínum. Ég fór að tala við bossinn sem er kona, en það var biðröð af fólki úr skólanum mínum að reyna að tala við hana líka, þannig að ég varð mjög áhyggjufull um að þau yrðu á undan mér til að fá sumarvinnuna mína. Get hringt í hana á morgun því þá er virkur dagur. En skrítið að nemendur úr skólanum á Akureyri væru þarna því vinnan er í Rvík!!!!
Í draumnum bað ég hana að skrifa bædði gemsa og heimasímann niður en á meðan var alltaf eitthvað fólk í kringum okkur að tala við hana þannig að ég þarf að vakna mjög mjög snemma til að ná einhverju vinnuplássi!!!!!!!!