Ég er að fara í Reykjavíkurferð með Myndlistaskólanum á Akureyri og þar sem ég er Reykvíkingur sjálf, sef ég heima hjá mér :) en þetta dreymdi mig:
Ég var á rútustöðinni með hópnum og við vorum að bíða eftir að komast í rútuna. Ég hitti allt í einu stelpu sem var með mér í fornámi í fyrra í Reykjavík, hún var mikið að hugsa um að fara í arkitektúr í Listaháskóla Íslands og ég held að hún hafi komist inn. Ég heilsaði henni og spurði hana hvernig gengi,en hún sagði að það gengi ekkert sérstaklega vel,væri bara að vinna og ekki í skólanum. Ég talaði það lengi við hana að ég missti af hópnum, það var orðið dimmt og rútan farin! Ég panikaði og man að ég gleymdi debetkortinu í rútunni sem ég missti af,reyndi að hringja heim en náði aldrei sambandi-man ekki meira!!!