Mig dreymdi að ég væri að labba úr rútu og sá vinkonu mína með einhverjum ljótum strák sem hún var hrifin af. Ég reyndi að forðast að hún sæi mig svo allt í einu var ég hjólandi á fullu niður brekku framhjá þeim, vonaðist til að þau sæju mig samt ekki. Vinkonan kallar á mig og ég neyðist til að stoppa. Strákurinn finnur það á sér að ég lít hann óhýru auga. Ég tek eftir því að hann er með pínulitlar dökkbrúnar tennur og langt bil á milli allra tannanna. Það kemur fýlusvipur á hann og hann labbar í burtu.

Draumur á enda