Það koma alltaf svona tímabil sem ég man og man ekki draumana mína! Af hverju ætli það sé? Svo er kona með mér í bekk sem er farin að muna allt sem hana dreymir um leið og ég er farin að gleyma mínum. Mér finnst svo leiðinlegt þegar ég man ekki draumana. Þeir eru svo skemmtilega furðulegir hjá manni og ótrúlegt það sem gerist í undirmeðvitundinni!