Ég er búin að muna hvern einasta draum í þessari viku annaðhvort slæmt eða gott.

ég man að ég átti barn í einum draumnum…enginn pabbi, bara barnið birtist í fanginu á mér. Ég var alltaf að passa uppá þetta barn en kunni varla að halda á því. Það var alltaf eins og það væri að renna úr fanginu á mér. Allt í einu sat barnið í tröppum og horfði á mig með smábrosi. Þá sagði systir mín: þetta barn er alveg eins og þú.
Þetta barn var stelpa.

þar áður dreymdi mig að ég væri alltaf að passa uppá eitthvað barn, að það dytti ekki og slasaði sig. Ég hafði ekki augun af barninu og það var alltaf að fara sér að voða!!!

Í nótt fékk ég martröð um að ég hafi fengið þær fréttir að amma mín væri DÁIN!!!! Ég veit að það getur samt þýtt andstæðuna ER ÞAÐ EKKI????!!!!!! ég var svo fegin að vakna, því þetta var svo raunverulegt og ég andaði léttar…þarna var ég að vakna á afmælisdegi ömmu minnar, sem var í dag, 31/1 02

Sömu nóttina dreymdi mig líka að ég væri komin með mjög óvenjuleg gæludýr í búri. Fyrst litu þau tvö út eins og naggrísir en þegar maður ætlaði að halda á þeim mynduðust hættulegir broddar út úr bakinu á þeim…svona eins og á broddgöltum…samt var þetta eitthvað úrkynjað og appelsínugult!!!

aðra nótt á undan dreymdi mig að ég væri að mála málverk og kennarinn var alveg að nálgast…í huganum vildi ég ekki að kennarinn kæmi strax því ég vildi fullvinna verkið áður en hún sæi það!!!