Mig dreymdi að ég væri í húsi sem vinkona mömmu bjó einu sinni, ég var í herbergi með mágkonu minni og við vorum að gista þarna og svo var mamma mín einhverstaðar þarna í öðru herbergi. Allavega ég vakna þarna í herberginu og lýt að glugganum sem er opinn og þar situr krummi/hrafn og er þarna eitthvað, ég reyni að ná honum og tekst það. Fer með hann út í garðinn og reyni einhverneginn að “bjarga” honum. Hleð upp litla nokkra steina til að gera svona “skjól” fyrir hann. Hann er semsagt já eitthvað lasinn/þreyttur eða eitthvað. Það er blautt úti og kanski pínku vindur.
Ég fer eitthvað inn aftur en samt já ég lít stundum út en þá er hann farinn. Svo fer ég inn og það eginlega er frekar ómerkilegt þar sem gerist þar :þ ég fer inn og fæ mér mjólk og já smáköku eða eitthvað, bara bull.
Ég vakna svo.
Ef það skiptir máli þá eiginlega man ég ekki alveg hvort hann krunkaði eitthvað, held samt ekki, var mjög þögull.
Gerið það gott fólk, gerið ykkar besta og hjálpið mér, þessi hrafn hræðir mig.
Honey! Get mommy's Bazooka!