Algengasta leiðin að ég held er notkun einhverskonar tónlistar eða takts allra heldur, t.d. er trommusláttur vinsæll meðal þeirra trúarhópa sem notfæra sér trans á einhvern hátt. Einnig á að vera hægt að ná þessu ástandi með djúpri hugleiðslu, eflaust væri hægt að blanda hugleiðslunni saman við trommusláttinn og nota róandi reykelsi, ofl.
Ég held að aðalmálið sé að æfa sig upp í svona hlutum og reyna að ná árangri í gegnum erfiða vinnu og mikla æfingu. Ég efast um það að þú getur hugleitt og hlustað á trumbuslátt í 5 mín og náð transi, það tekur eflaust vikur, mánuði eða jafnvel meira, hver veit.