Hórus er sonur Osiris og Isis.
Sama hvort Zeitgeist meiki meira sens en vísindakirkjan, (þó mér finnist part II, hvað þá part III, varla meika meira sens) þá breytir það voða litlu þar sem það er mjög auðvelt að komast að sannleikanum.
Þú hins vegar virðist ekki nenna að hafa fyrir því þannig að hættu að rífa þig.
Ef þú vilt láta mata þig með röngum upplýsingum úr vafasömum heimildarmyndum, gjörðu svo vel. Horfðu á “What the blEEp do we know” og “No intellegence allowed”.
En ekki þykjast síðan vita eitthvað um málið og reyna að þræta fyrir það.
http://en.wikipedia.org/wiki/Legend_of_Osiris_and_IsisÞað eru til margar útgáfur af því hvernig Hórus varð til en í öllum koma bæði Isis, og Hórus við.
Það er spurning um hvort hann hafi verið eingetin, en það að Isis hafi verið hrein er algjört kjaftæði.
Ég er ekki að þræta fyrir það að Jesú á margt sameiginlegt með mörgum öðrum guðum og er keimlíkur þeim, enda er ástæðan fyrir vinsældum kristni kannski sú hvað hún tók allt það vinsælasta úr hverju trúarbragði fyrir sig.
En það er ekki eins og því er lýst í Zeitgeist.