Ég fæ alltaf tímabil þar sem eitthvað eitt þema er ráðandi í því sem mig dreymir, og þessa dagana virðast náttúruhamfarir og hverskonar tragedíur ráða förum, t.d. stríð, þá einna helst einhverskonar efnastríð og annað í þá áttina, jarðskjálftar, flóð, ofl.
Í flestum þessum draumum gengur draumurinn út á það að lifa af, og ég er yfirleitt umkringd hóp vina minna og við erum inni í einhverri byggingu að reyna að forðast dauðann sem virðist vera óumflýjanlegur.