hvað er voodoo
ég vil bara fá að vita hvað voodoo er og hvenig maður gerir voodoodúkku HJÁLP
Nekron
Ok og hér koma nokkur góð ráð dýr…;-)
1. Smíðaðu dúkku úr dugandi efni, þ.e.a.s. einhverju sem getur tekið vel við barsmíðum og hnjaski. Þetta mætti vel vera td. prjónað/saumað og/eða úr leir. Einfaldlega einhverju handhægu og gættu þess að því meiri vandvirkni sem þú leggur í smíðina; þeim mun hressilegri verða áhrifin. Skemmtu þér við neikvæðar hugsanir og fantasíur, svosem hatur og illsku gangvart fórnarlambi á meðan gerð dúkkunar stendur. Ef þú hefur ljósmyndir, skartgripi eða eitthvað annað sem tilheyrir fórnarlambi, endilega notaðu það í smíðina og vertu varkár (vandvirkni er mikilvæg!!!)… NB: Því meira sem smíðin líkist fórnarlambi (hárlitur, klæðnaður etc…), þeim mun betra…
2. Geymdu dúkkuna á áberandi stað í minnst 24 klst; þá helst þar sem hún flækist mikið fyrir þér og þú getur magnað hatur þitt gegn henni (að ógleymdum óvini þínum)…
3. Þegar sú stund rennur upp; að þú ert orðin nær afvelta af hatri, óþolinmæði og mannvonsku: Taktu dúkkuna og skemmtu þér konunglega við að pína hana á hinn allra versta máta. Notaðu prjóna, barefli, reipi (til kyrkinga), eldspýtur, skotvopn (?!?) og hvað annað er þér þykir til hæfis. Helltu þér gjörsamlega út í þetta og - hreinlega - slátraðu dúkkufjandanum!!! leggðu allar þínar tilfinningar í verknaðinn… (Hér mætti segja hversu gott er að enda pyndingarnar með því að hreinlega kveikja í öllu draslinu, dansa vel og hoppa á því, hella svo í klósett, míga vel yfir og sturta svo niður…!-)
4. …En mundu að leggja allar þínar hugmyndir og fantasíur í þetta. Td. ef þér finnst viðeigandi að gera þetta nakin/nakinn undir fullu tungli; þá þætti það mjög gott og styrkjandi, enda meiri líkur á því að dæmið gangi upp…
5. MIKILVÆGT!!! Ekki hætta barsmíðum og prjónaskap fyrr en þú ert úrvinda og laus við allar þær tilfinningar sem þú hefur burðast með vegna fjandskaps…
Að lokum: Áhrif og afleiðingar skipta engu máli og mikilvægt að þú hugsir ekki frekar út í illindi og/eða óvin að loknum verknaði. Dæmið gegnur út á það - allra helst - að hreinsa út slæmar tilfinningar og þegar uppi er staðið; skiptir það engu máli hvernig fer og hvort þetta virki eður ei…
Ekki hafa áhuggjur af einhverju ‘Wicky Wacky 3 way Jose’ bulli og skemmtu þér frjálslega við þetta. Þegar þessu er lokið; þá líður þér betur og ekkert ‘slæmt’ mun sitja yfir þér, þ.e.a.s. ef þú stendur þig vel…;-)
Gangi þér vel og góða skemmtun!!!
Ave,
D/N