Mig dreymdi tvo furðulega drauma fyrir svona ári síðan, en mig dreymir reyndar ekki langa drauma þannig að það er ekki mikið af smáatriðum.
Annar var, að ég var í Danmörku og ég átti að flytja 10 guðspjöll sem voru skrifuð af Jesú til Íslands, og þessi guðspjöll voru leynileg, það vissi enginn af þeim. Og þetta var hættulegt verk þannig að ég ákvað að fá níu aðrar manneskju til að fara með eitt guðspjall hvert til Íslands, en svo var draumurinn búinn.. Svo nokkrum vikum seinna dreymdi mig aftur eitthvað í sambandi við þessi guðspjöll og Jesú og eitthvað í sambandi við sjónvarpið, og svo daginn eftir (þegar ég var vöknuð) var ég að horfa á dateline og þar var maður sem hafði skrifað bók um einhver leynileg jesússkjöl, reyndar hafði hann engar sannanir, en það er annað mál,. Samt svoldið skrýtið.
Hinn draumurinn var rosalega sterkur. Ég var á pallinum heima hjá mömmu(ég er utan af landi) með vinkonu minni og horfði hinum megin í fjörðinn og tunglið var fullt, og það voru alltaf að myndast og hverfa svona lítil ljós í kringum tunglið, aftur og aftur. Svo leit ég til hægri (inn fjörðinn) og þá byrjaði að koma sjörnuhrap eftir sjörnuhrap, og ég taldi 14 stjörnuhröp en þá vaknaði ég…
Ef einhver kann að ráða drauma, þá væri það vel þegið..