Mig dreymdi svo skrítinn draum í gærnótt:
Ég var stödd í einhversskonar verslunarmiðstöð, nema hvað ég var í einhverjum svona tíma (hópur að læra eitthvað stórfurðulegt, blanda af jóga/kickbox!!!). Síðan kemur strákur sem ég þekki og byrjar að dansa við mig. Þá koma fleiri strákar og byrja að dansa við fleiri í hópnum. Svo kemur vinur stráksins sem ég er að dansa við (ágætistvinur minn, voru tilfinningar á milli okkar fyrir löngu síðan) og strákurinn sem ég er að dansa við stígur frá mér og býður hinum stráknum að taka við og kallar hann “Séra”, ég kynni mig á móti og segi nafnið mitt (í raunveruleikanum vitum við auðvitað nöfn hvors annars!).
Þetta var svona það mikilvægasta (það gerðist samt alveg hellingur á undan sem tengdist þessu ekki beint); ég geri mér svona nokkurnvegin grein fyrir hvað þetta merkir, en ég væri þakklát ef þið gætuð gefið ykkar skoðun á þessu.
Takk ;)