Skordýr
Mig dreymdi frekar óþægilegan draum í nótt en man hann mjög óskýrt. Það sem ég man er að ég var með mjög nákominni manneskju inní mjög litlu og þröngu herbergi. Herbergið var opið. Svo alltíeinu fór manneskjan að tala um blóðsugur og ógeðsleg skordýr. Þá alltíeinu kom svona gul og græn fluga skrýðandi inní herbergið og ég vissi að það var blóðsuga. Ég lamdi hana með barefli og tveir fætur fóru af. En þeir héldu bara áfram að labba í áttina til okkar ásamt búknum með hinum fótunum. Þá fór ég út úr herberginu til að ná í hjálp en hin persónan (nákomin) varð eftir. Svo vaknaði ég.