afbrýðisemi í mér!!!
Dreymdi að einhver sem ég á að þekkja…stelpa sem var allt í einu búin að láta klippa hárið stutt, hefði keyrt mig að einhverju íþróttahúsi. Ég var úti í bíl og sá minn fyrrfyrrverandi kærasta labba þar út. Ég reyndi eins og ég gat að kalla á hann og banka á ´framrúðuna en hann heyrði seint í mér. Hann kom inn í bíl en líka einhver stelpa sem var ballettdansari…hún var falleg og var örugglega kærastan hans og var ballettdansari. Hún kom brosandi inn í bílinn. Hann var alvarlegur á svip (alvörugefin týpa). Ég man hvað ég var afbrýðisöm og langaði að fá hann aftur til mín. Þar endar draumurinn.