Ég verð að vita hvað þetta þýðir, nema það sé of augljóst bara útaf áhyggjum fólks í heiminum í dag:

Mig dreymdi fjóra drauma í röð en man bara tvo:

Kona með mér í bekk var að vara mig við því að taka flug heim (við erum í skóla fyrir utan Rvík), ég spurði af hverju hún væri að vara mig við, þá sagði hún að flugvöllurinn væri fyrir utan Pentagon. Endir.

Svo dreymdi mig sömu nóttina:

Ég væri að labba í vinnuna til mömmu…ég var að labba á eftir mömmu minni í bygginguna…samt var þetta ekki byggingin sem hún vinnur í heldur mjög hátt hús (örugglega world trade). Ég sá bara baksvipinn á mömmu allan tímann. Hún settist í sófa, og ég sé enn baksvip hennar, en þarna sitja samstarfsmenn hennar og einhver er að kynna mig fyrir samstarfsfólkinu hennar. Þeir voru ekki kynntir fyrir mér með nöfnum heldur númerum og það eina sem ég man var:“Já, þetta er F274 og hún er frá Frakklandi.” Ég heilsa henni með handabandi og draumurinn er búinn. Þetta er svo furðulegt!!!

Hey ég man þriðja drauminn þessa sömu nótt: Ég er í djúpri sundlaug að dansa við einhvern!!!! Það var ekkert erfitt að taka sporin í lauginni en vatnið náði alveg upp að munni og ég var alltaf að passa uppá að drukkna ekki. PLEASE ráðið drauminn minn!!!!! Ég bið ekki um meira þó ég biðji um mikið!!! Takk fyrir :)