Ég get sagt þér eina í “stuttu” máli sem að einn kennarinn minn hefur sagt mér eða öllum í félagsmiðstöðinni minni. Ég ætla semsagt að segja hana í 1 persónu(held ég:P)
Mig dreymdi einu sinni draum þegar að ég var sjö ára. Hann var semsagt svona.
Ég var niðrí skóla eftir myrkur með mömmu og við vorum bara að labba út úr skrifstofu kennara míns,svo næstu mínútu þá var ég allt í einu komin niður í salinn! Þar lá ég á sjúkrabörum og gat bara ekkert hreyft mig! Og þar fyrir framan mig stóðu mamma,pabbi og einhverjir tveir aðrir menn að hugga foreldra mína,það var ennþá myrkur,dregið var fyrir alla glugga það kom bara smá ljóstýra frá tunglinu á milli gluggatjaldanna.
Ég sá að mamma var alveg hágrátandi og horfði á mig. Ég reyndi að hugga mömmu með því að tala við hana og reyna að faðma hana en ég gat hvorki hreyft mig né talað en ég heyrði allt eins og venjulega skildi allt en var alveg sem lömuð! Svo fóru þau öll!
Ég var alein þarna inni í þessum stóra sal,eða ég hélt það! Um leið og þau lokuðu hurðinni þá komu þessi andlit,þessar verur. Þær færðust allar nær mér,ég reyndi að öskra á hjálp en ekkert gerðist! Ég reyndi að standa upp og hlaupa,ég gat það ekki! Ég reyndi að loka augunum þá,en ég bara gat ekkert gert!
Það var ótrúlega vont,ég var orðin svo hrædd,ég var að vonast til að þetta væri allt saman draumur og ég myndi vakna strax! En ég bara var grafkyrr og hreyfðist ekki. Ég var alveg meðvituð um allt sem var að gerast á meðan að þessi andlit,þessar verur voru allt í kringum mig. Ég áttaði mig á því að þetta voru lík! Þau voru ógeðsleg,ég var ótrúlega hrædd. Þau voru alltaf að kalla á mig,eins og þau þekktu mig. En ég hafði aldrei á ævi minni séð þau áður!
Mér fannst þetta var alveg hel eilíf að endast. Þau voru mörg alveg ofan í mér,ég reyndi að berja þau frá mér en ekkert gerðist. Þau voru flest öll rotnandi,eða rétt byrjuð að rotna. Svo vaknaði ég! Ég mundi eftir þesu öllu! Öllu saman,það var ógeðslegt,mér leið ógeðslega,ég hljóp til mömmu og hún byrjaði að hugga mig,svo fór agalegur sársauki um mig alla! Ég vissi ekkert hvað var að gerast,ég bara meiddi mig agalega mikið. Svo þegar að mamma lyfti upp bolnum mínum þá fóru að myndast agalega stórar og djúpar rispur á mig alla og það fór að blæða,allt fyrir framan mömmu og mig,ég horfði á þetta gerast og skildi ekkert í þessu!
Svona var þetta sirka bát! Það er samt mikið betra að heyra hana segja þetta sjálf:D Hljómar mikið betur frá henni^^, En scary shit,það hefur svo ótrúlega margt komið fyrir þessa greyið konu:O Hún hefur sagt okkur að minnsta kosti 5 svona sögur um sig. Allt saman hefur þetta gerst!