Mér skilst að það sé ekkert að kynnast draugum þar. Það sem er þar er bara virkilega óþægilegt og sumir ganga svo langt að kalla það ógeðslegt. Ég hef það fyrir víst að sumir sem sjá fara ekki yfir brúna sem er þarna rétt áður en maður kemur að Laugum. Annars hef ég aldrei orðið var við neitt þarna sjálfur, enda ekki farið nýlega. Maður ætti kannski að skreppa þangað við tækifæri. Og útaf því að þú ert að tala um Laugar og útaf nikkinu þínu geri ég ráð fyrir að þú sért af norðurlandi. Ef þér finnst óþægilegt að finna fyrir einhverju, og ef þú finnur fyrir eða sérð eitthvað sem aðrir verða ekki varir við, þá mæli ég EKKI með því að þú farir á fyllerí á Ytri-Vík. Ég hef gert það 2 sinnum og sá eftir því í bæði skiptin. Fokk óþægilegt.