Sko, það skiptir auðvitað miklu máli HVERJA þú sást í drauminum, hvaða fólk þetta var og hvernig það tengist þér og hverjar tilfinningar þínar til þess eru. Annað hvort lýsir þessi draumur togstreitu eða áhyggjum eða hann er viðvörun um að þú þurfir að vera vakandi vegna sonar þíns, eða þú ofverndir hann eða eitthvað. Það er mjög erfitt að segja til um það þegar maður veit ekkert um fólkið sem þú sást.