Hæbb, er ekkert vanur að vera hérna á dulspeki, en mig datt í hug láta reyna á þetta.
Fyrir c.a. viku síðan þá dreymdi mig skrýtin draum, það var eins og að ég hafi verið fyrst bara í mínum venjulegum draumum, en svo allt í einu varð ég orðinn einhver þybbinn maður á svona sextugsaldri. Og viti menn, hægri eyrað mitt er skorið af af einhverjum manni. Fyrst fannst mér eins og sársaukinn væri alveg að koma, en svo leið mér bara eins og ég væri kominn með verkja/deyfilyf í æð eða eitthvað. Svo vaknaði ég, en mér fannst í svona 5 sec eins og að eyrað mitt væri horfið. Ég sagði fjölskyldunni frá og við bara hlógum. Svo seinna um daginn við kvöldfréttirnar, þá kom einhver frétt um það að einhver skar annað eyrað á einhverjum manni á sextugsaldri sömu nótt. Funny ?