Endilega segið frá ykkar reynslu af svona draugadæmi einhverju :D Það sem þið hafið séð eða heyrt, eða heyrt frá öðru fólki .. sem kallast reyndar ekki reynsla en .. :D

Ég hef tvisvar lent í svona. Einu sinni þegar ég var 8 ára sá ég einhvern mann standa við útidyrahurðina :O Það var ógeð.

Svo þegar ég var 11 eða 12 var ég veik heima og opnaði aðeins augun eftir að ég hafði dottað og sá strax spegilinn og það var eins og e-r væri að labba framhjá, lítil manneskja með ljóst hár, sást bara í kollinn. Hélt að þetta væri mamma en hún er ekki svona lítil .. hún hafði líka bara setið þarna við tölvuna í einhvern tíma :/ Kannski var ég bara með rugluna þarna enda hafði ég verið mikið veik =D

Fyrirgefið ef þetta er illa uppsett, dauðþreytt núna.