Ég var að lesa greinina ,,Nokkrir draumar sem mér hefur dreymt“ og datt í hug að senda inn hérna drauma sem mig hefur dreymt en þeir eru ekki alveg jafnalvarlegir og í þeirri grein. Mig og systur mína dreymir alltaf einhverja þvílíkt skrýtna drauma en sumir telja að það tákni eitthvað. Ég fæ oft Deisjavú en þau eru öll ómerkileg. Til dæmis dreymdi mig einu sinni að ég væri í handmennt og kennarinn minn sagði við annan kennara ,,Það er alveg rosalega kalt.” og drakk kaffið sitt. Daginn eftir fór ég í handmennt og þetta gerðist, voðalega skrýtið :)
Um daginn dreymdi mig að rolla systur minnar hefði borið. Hún átti eitt lamb sem er skrýtið, því hún hefur alltaf átt tvö. Lambið dó í draumnum og ég fór að borða það ! og það var saltbragð af því og ógeðslega vont en ég borðaði það nú samt. Auðvitað var þetta bara draumur :) Daginn eftir gat ég ekki hugsað um annað en þennan draum og þegar ég kom heim úr skólanum kíkti ég í fjárhúsin. Þá var þessi rolla borin og með eitt lamb sem var nærri dauða en lífi. En það er allt í lagi með það núna. Þetta var geðveikt skrýtinn draumur !
Fyrir stuttu dreymdi mig að vinkona mín hefði beðist afsökunar á að kynnast öðrum vinkonum mínum. Nýlega fóru þessar stelpur að rífast og þær sættast ábyggilega aldrei. Veit ekki hvort þetta tengist eitthvað en maður veit aldrei :)
Skoðanir ykkar ?