Ég hef ekki trú á því að þessi martröð hafi neitt með bíla né brýr að gera. Það eru ekki allir sem dreyma drauma sem eru fyrirboðar og ef þig hefur ekki dreymt slíka drauma áður held ég að þú þurfir ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur af því að deyja í bílslyi á næstunni.
Mín túlkun á þessum draumi er (og þetta er bara getgáta, skot í myrkri og ég hef í raun og veru enga sérstaka reynslu af því að ráða í drauma aðra en mína eigin)að þú gætir verið hrædd um að hafa ekki stjórn á þínu eigin lífi, niðurbæld hræðsla við óviðráðanlegar aðstæður. Til þess að losna við þessa martröð myndi ég þá halda að þú þyrftir að horfast í augu við framtíðina og sæta þig við það að það sem gerist gerist og það er engin leið til að breyta því því þú veist ekki hvað gerist fyrr en eftir að það gerist (ef þú skilur hvað ég á við)
En eins og ég segi hef ég ekki hundsvit á sálfræði, dulspeki, draumráðningum eða neinu slíku svo það eru miklar líkur á því að þetta sé bara alveg kolrangt hjá mér. :)