Núna í nótt dreymdi mig skemmtilegan og langan draum sem hlóðar svo:
Fyrst fór ég í skólann eins og venjulega bara og svo var íþróttir og svo matur en ég gleymdi íþróttardóti þannig að ég sleppti íþróttum. Svo fór ég og Einar (bekkjarbróðir minn) inní matreiðslustofuna og fórum að gera hamborgara eins og maður gerir venjulega nema við notuðum risastóra skál í staðin fyrir pönnu en við náðum þó að gera hamborgara og við borðuðum þá. Svo var kominn matur, þá voru einmitt hamborgarar í matinn en kennarinn bannaði mér að fá hamborgara því ég fór ekki í leikfimi. En svo alltí einu þá fóru allir að skoða með kíkji einhvað, nema ég því ég var í fýlu en svo komst ég að því að Steve Harris, bassaleikarinn í Iron Maiden, væri að fara að koma þannig að ég hljóp út og var fyrstur og fór uppað bílnum þar sem Steve Harris var og heilsaði honum og var einhvað að segja honum að ég væri mikill aðdáandi og einhvað þannig. Svo alltí einu fórum við í bíó á SpiderMan sem var í 4 klst. Og var búin kl. 1 um nóttina, svo voru ég og Steve Harris einir í leigubíl sem keyrði okkur í einhvað hús og það var bara eins og einhvað hótel, bara pínu lítið og svo var ég bara einhvað að tala við Steve Harris og spurja hann af einhverju og ég fékk eiginhandaráritun og einhvað. Svo var svona eins og einhver kvöldvaka, fyrst þá voru fullt af fólki uppá einhverju sviði og ég fór þangað bara líka, samt bar ekkert mikið á mér, og það var einhver söngvari að syngja óperu eða einhvað og var málaður svipað og trúður, en svo fór allt fólkið af sviðinu smátt og smátt án þess að ég tók eftir því og ég var þá bara alltí einu einn uppá sviði en svo fór ég bara og settist í stóla sem voru þarna sem allir sátu í og svo var einhver annar strákur sem stóð upp til að fara í annan stól og það var alltaf klappað fyrir þeim sem stóð upp og svo voru 2 strákar með einhversskonar leikrit, og það var þannig að einn sat í stól og var að rugga sér og lappirnar á stólnum snérust einhvað og stóllinn breyttist í rúm. Og svo náði hinn strákurinn í fleiri stráka og þeir fóru bara að hlægja af honum sem var í “stólnum” og hann var að vara fólk við því að vera að rugga sér á stól. Svo alltí einu vorum við aftur komin inní herbergið okkar þarna, og ég var einhvað að tala við hann Steve og svo alltí einu voru komnir miklu fleiri í herbergið, og það var kúluspil þar og einhvað fleira.
Svo vaknaði ég bara, en já, ég fór soldið mikið út í smáatriði til að geta lýst draumnum betur.
jæja, vona að einhver viti hvort hann tákni einhvað sérstakt eða einhvað.