Vá, ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja.
Ég hef oft farið til miðils og spákonu og í öll skiptin sem ég hef farið er alltaf sagt við mig að ég hafi hæfileika til að sjá fólk, heyra í því, tala við það og spá, hvort sem það er í spil, bolla eða einhvað annað.
En vandamálið er það, að núna eru 2 ár síðan ég fór fyrst til miðils og ég hef ekki ennþá fundið fyrir þessum hæfileikum! Hver ætli ástæðan sé? sumir segja að ég loki á þetta, en ég held ekki, ég er alls ekki hrædd við svona hluti. æææææææiiiiiiiiii, getur einhver sagt mér hverju ég á að trúa?
Kveðja stiffie