Í nótt var eitt af þeim fáu skiptum sem mig dreymir eitthvað og ég man eftir því og þessvegna ætla ég að biðja ykkur um eitt stykki draumráðningu.

Allaveganna ég var bara í “gúddý fíling” á handboltaæfingu með Ungmennafélaginu Bifröst, sem er skrýtið þar sem ég æfi ekki lengur með þeim.

Og á æfingunni þá flaug allt í einu eitthvað inn um gluggann[man ekki hvað] og lenti á jörðinni fyrir framan mig.

Löggan kom og skoðaði þetta og sagði að okkur væri óhætt að halda áfram að æfa.

Þegar ég kom síðan heim þá gat ég ekki læst útidyrahurðinni.

Allt í einu brotnaði rúða og þá komu eitthverjar löggur og stóðu við brotna gluggann.

En síðan komu 2 manneskjur og brutust inn í húsið og síðan vaknaði ég.

Eitt af því skrýtnasta við þetta fannst mér vera að þegar ég fór heim með pabba þá lentum við heima hjá ömmu minni í móðurætt, getur það tengst því að afi minn í móðurætt sé hjartveikur???

Með fyrirfram þökkum

Nesi#13