Draumur sem mig dreymdi 13-14 janúarnótt
Ég er heima hjá T, samt ekki, þetta er eikkað hús sem ég hef aldrei farið inní, húsið er á króknum…samt er þetta ekki krókurinn, ég hugsa um bíldudal en þetta er stærra. T er þarna og U og svo B sem T var gift einu sinni, það var eikkað brúðkaup í gangi….konan sem J bróðir minn ergiftur var að gifta sig og ég hélt alltaf að hann væri að giftast henni þarna en það var B, og J ekki neinstaðar. BS er þarna….og stelpa úr grunnskólanum sem heitir G. Bærinn er við fjall…minntu mig á nafirnar en svo er ekki. Þetta er eikkað fjall. Svo er eikkað fólk þarna sem ég þekki en ég man ekki hverjir þetta voru. Þetta hús var frekar gamalt samt ekki. Það er fellibylur þarna, skýstrókur…fer stundum fram hjá húsinu og allir frekar hræddir og ég alltaf að skipa öllum að tak drasl og fara í bíla og keyra í burtu, en við bíðum samt, fellibylurinn fer fram hjá húsinu stundum en nálgast alltaf nær húsið…..svo er hann kominn hinum megin við húsið upp á fjallinu og þá hættum við að lítast á blikuna..ég tek fartölvutöskuna ásamt fartölvunni og set eikkað draslí hana líka..ásamt hliðartöskunni með hauskúpunum. Þar er ég með mat og föt og eikað, ásamt ferðatösku sem ég fillti af mat. Henti í skottið á bílnum hennar T, ég fer eikkað aftur inn og kem út aftur þá er T farin
Svo er ég allt í einu í bíl. Með T, ég lýt aftur fyrir mig þá byrjar að gjósa í fjallinu
Eldgos! Ekki eitt stórt heldjur mörg lítil samt stór..ég náttla “keyrðu hraðar” En T er eitthvað svo alveg sama, samt ekki, svo sé ég alveg að við keyrum geggjað hratt og það eru tré sitthvorum megin við veginn.,,eins og trégöng or something og tinna keyrir eins og motherfucker gegn því það var náttla kviknað í þessu og ég sé bara að við keyrum í gegnum eldinn, komum svo nokkurnvegin út samt eldur út um allt. Svo er ég allt í einu inní húsinu aftur og allir týndir…ég er alltaf að tárast og með kökkinn í hálsinum, var alltaf að hugsa um T og BS (Sem er 13 mánaða sonur hennar) og hvar þau væru og eikkað, ég man núna að þetta brúðkaupsdæmi var ekki þarna í byrjuninni á drauminum… það byrjar núna meðan ég er í húsinu að deyja úr áhyggjum, E er þarna semsagt…drullumikill sóði…ég man að klósettin voru ógeðsleg…voru 2 klósett þarna sko. Ég man að U datt oní eldinn á eikkerjum gatnamótum…náttla dó. ég man ekki meira.
Plís viljið þið reyna að lesa eikkað úr þessu..þetta var svo flókinn draumur og mikið að gerast og svo helvíti raunverulegur! takk :*