ég ætla að segja ykkur frá nokkru sem alveg skíthræddi mig, ég ætla ekki að fullhæfa að þetta hafi verið eitthvað yfirnátturulegt.
En allavega þetta var svona, ég var að labba heim eftir að vera bera út morgunblaðið kl 7. að laugardagskvöldi, þá lít ég yfir faxaflóann og sé eitthvað dökk brúnkenndan óreglulegan fimmhyrning fljúgandi hljóðlaust í yfir faxaflóanum, þetta flýgur í svona 5 sekúndur eftir að ég tek eftir því. mér fannst þetta furðulegt, en ákvað að gefa þessu ekki frekari gaum. En það sem truflar mig er að ég sá þetta núna aftur fyrir stuttu á sama stað, nema núna um morgun, aftur hljóðlaust. Ég flýtti mér heim eftir þetta, en hafði þessa óþægilegu tilfinningu að ég væri eltur. hafið þið einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið?