Hæbb, langaði að fá ráðningu á draum sem mig dreymdi um daginn því mig langar ótrúlega að vita hvað svona draumar tákna og einhvernveginn finnst mér að þeir séu ekki góðs viti? :/ Allavegana….
Mig dreymdi um daginn að ég hefði misst tönn! (tönnin fyrir aftan augntönnina hægra megin)… Og augntönnin sömu megin var skemmd, brún og ógeðsleg! Í draumnum var mér alveg sama að ég hefði misst þessa tönn og í rauninni alveg sama um skemmdu tönnina líka…
Vitiði hvað svona draumar tákna??