Ég kom einu sinni heim úr skólanum, það hafði verið kalt úti og ég fór undir sæng…mér var það kalt að ég setti sængina alveg yfir höfuð og fékk þessa martröð í stíl við hvernig ég sofnaði undir sænginni:

Mig dreymdi að ég væri með húfu fasta á andlitinu og náði henni alls ekki af. Hún var svört. Ég vaknaði við það að ég var að kafna og um leið hef ég (í draumnum) náð húfunni af mér. Þetta var ógeðslega óþægilegt!!!!!!!Tók rosaleg andköf!