Held að það sé nú bara persónubundið. Þeir sem eru næmir og hafa t.d. verið næmir sem barn - Séð hluti og þess háttar geta verið því meira opnir fyrir tilvist þeirra (drauga) en venjulegir menn sem hafa þessar rásir lokaðar.
Trúðu mér. Það er best að geta ekki komist í snertingu við þá. Sér í lagi ef um ærsladrauga er um að ræða. Flestir sem eru svona næmir og sjá hluti sem aðrir sjá ekki láta loka fyrir það því þeir höndla ekki það sem þeir sjá.
Til að finna tilvist drauga að þá þyrftiru að vera á stað eða hús þar sem tilvist þeirra er gífurleg. Þá getur hver sem er orðið fyrir henni. Til að mynda mjög mörg fræg draugahús eins og High Hope húsið í Amityville sem er verið að sýna í bíóinu núna. En það er mynd sem er byggð á sönnum atburðum.
I´m crazy in the coconut!!! (",)