Í þínum sporum myndi ég hætta að pæla í að fara til miðils, heldur FARA til hans. Ég ætla ekki að vera með leiðindi eða þess háttar, en það er greinilegt að það er einhver sem vill ná sambandi við þig, (vonandi af hinu góða). Svo að ef þetta er einhver sem er ef til vill fastur, þá ætti miðillinn að geta hjálpað honum. Ath, þarf ekki að hafa verið afi þinn. Ráfandi sálir leita oft til þeirra sem eru næmir og vantar hjálp til að komast áfram. Er einhver mjög næmur á þínu heimili, ef til vill þú sjálfur ? Og því miður þá eru úti bitrar sálir, sem ,,Nærast,, á þeim sem eru þunglindir, niðurdreignir, bitrir og reiðir og svo framvegis, en sú manneskja þarf að vera næm til að þeir sækja að henni. Ég er ekki að segja að þetta sé alltaf svoleiðis með manneskjur sem eru niðurdregnar, heldur bara tilfelli. Getur komið fyrir. En já ég myndi leita til miðils í þínum sporum :)
Gangi þér vel :)