Creepy
Ég er ekki viss hvort ég hafi verið vakandi eða sofandi, en allavena, ég var einhverntímann einn heima í fyrsta skipti um nótt og var við öllu búinn um nóttina, var með hafnaboltakylfu inni í herberginu og allt, en svo fór ég að sofa… Svo veit ég ekki hvort mig hafi verið að dreyma eða vaka, en allavena ég gekk fram úr herberginu, með hafnaboltakylfuna, veit ekki afhverju, ætlaði á klóstið, en þá heyrði ég hljóð í stiganum sem er rétt hjá, svo ég gekk þangað. Þá sá ég svartann skugga vera að labba niður stigann og svo stoppaði hann og horfði á mig, og svo hljóp hann alltíeinu niður og ég ætlaði að sveifla kyflunni í hann en, bamm. Laminn í hausinn. Ég var rotaður eða eitthvað. Svo vaknaði ég og fann til í enninu, og kylfan var ekki á sama stað í herberginu, ætli ég hafi bara gengið í svefni???