Það er alltaf mjög erfitt að ráða drauma þegar maður veit ekki drauminn alveg og maður þarf helst að þekkja dreymandann eða amk aðstæður hans, en hér eru nokkrir möguleikar sem mér finnast koma til greina.
Mér finnst draumurinn um tennurnar tákna:
a) illt umtal, (þar sem ég þekki þig ekki þá annað hvort einhver sem er að tala illa um þig eða það sem er líklegra að þú sért að tala illa um einhvern (viljandi eða óviljandi).
b) Þú þarft að passa betur upp á matarræði þitt.
Maður “veit” þegar draumar eru að reyna að segja manni eitthvað en það er yfirleitt bara þú sjálf sem getur fattað hvað það er í raun og veru. Draumar eru þannig svona ábendingar um hvað maður þarf að bæta í fari sínu eða hegðun.
Með hárkolludrauminn fæ ég helst á tilfinninguna að þú eigir erfitt með að leyfa fólki að kynnast “the real you”, og setjir upp svona hálfgerða grímu eða front fyrir annað fólk en geymir litlu kisuna þig inní þér.
En ég veit svosem ósköp lítið, vonandi hjálpar þetta þér samt að átta þig á draumunum þínum :)
Kveðja,
Ljúfa