Mig dreymdi næstum 3 sinnum sama draumin og mér finnst það frekar merkilegt afþví mig dreymir oftast ekkert.
Fyrst dreymdi mig sama draumin 2 í fyrra að ég væri fastur í einhverju risastóru húsi með einhverri konu sem var bara þarna og mér fannst það ekkert merkilegt og það er allt í svoan klukkum útum allt og einhvernvegin náði ég að finna eitthvað útur þeim(er með mjög lélegt tímaskyn) og reyndi að elta þær og fór í fullt af herbergum og í hverju herbergi var eitthvað sérstakt t.d. vélsagir að fljúga um og reyna saga mig og fleira
svo enda ég á geðsjúklingnum sem stjórnar húsinu og hann festir mig alltaf í búri eða einhverju og konan ætlar alltaf að drepa hann einhvernvegin og þegar gaurin er allveg að fá hlutin sem hann á að deyja útaf í sig þá vakna ég.

svo dreymdi mig núna um daginn að ég væri aftur í svona risastóru húsimeð fullt af herbergum. draumurinn byrjar svoleiðis að ég er inní stofunni á husínu með konunni og það koma fullt af verum sem litu út einsog risastórar rauðar blöðrur með munn og tennur og læti. og einhvernvegin text mér að sprengja þær og þegar þær springa springur rauður vökvi útum allt(væntanlega blóð). ég seigi strax við konuna “þetta er draumur ég ætla ekki að reyna flýgja ég ætla að drepa manninn sem stendur fyrir þessu” og ég hleyp upp stiga og inní herbergi þar sem einhver hamstur er að fara að vera sleppt ofan í svona þotu hreyfil eða þannig og útaf einhverjum ástæðum verð ég að bjarga honum einsog ég þekki hann eða eitthvað og er ég skít hræddur meðan ég bjarga honum og svo þegar ég næ að bjarga honum skil ég hann bara eftir þarna inni og fer út(hef aldrei átt hasmtur né neitt gæludýr nema bróðir minn átti hamstur fyrir mörgum árum). Svo man ég ekki eftir öðrum herbergum nema man bara að þau voru fleiri svo enda ég í svona stóru rími og byrja að taka eftir því að útum allt eru svona skynjarar sem skynja hreyfingar mínar og láta hluti fara af stað um leið og ég kem að einhverjum punkti. einvhernvegin með þessu finn ég út í hvaða herbergi ég á ekki að fara. Ég enda í einhverju herbergi og konan hafði aldrei komið með mér í neitt herbergi nema hún kom með mér í þetta og það var ekkert inni í því neam stórt rúm og á sænginni var svona “hóll” þannig ég tók sængina af þá var önnur sæng og svo önnur og svo önnur og svo önnur svo tók ég síðustu af þar lág eigandi húsins með risa stóra vatnsbyssu og hann teygði sig til mín og setti mig í rúmið þar sem ég var fastur. Konan öskraði á mig eitthvað en ég heyrði ekki hvað hún sagði svo tók hún í gikkinn á byssunni sinni og búmm ég vaknaður.

Vonandi getiði sagt mér hvað draumurinn þýðir.