Ef þetta er það sama og ég hef upplifað (ekki oft þó) en þá er þetta sérstök tegund af “draumum” en ég veit lítið um hvernig þetta virkar en það sem gerist er að maður kemst í nokkurskonar leiðslu. Vinur minn lenti í því að hann lá upp í sófa alveg afslappaður og svo sogaðist hann inní sófann og var svífandi í “annari veröld” meðan einhver rödd talaði við hann á arabísku eða einhverju álíka tungumáli. Þegar ég hef lent í þessu hef ég heldur ekki getað hreyft mig og maður finnur ekki fyrir líkamanum. Eitt skipti urðu allir litir í herberginu brenglaðir, dökk bleikir, gulir og svo framvegis og ég sá vin minn ganga inn (hann var ekki heima hjá mér þegar þetta gerðist) og svo hvarf hann.
Það eru til sérstakar æfingar til að ná þessari leiðslu, það er að leggjast niður og ýminda sér að það er einskonar “rafmagnskúla” inn í líkamanum þínum, og hún ferðast hægt og rólega með útlimunum, byrjar neðst. Með þessu getur þú hægt og rólega látið hvert svæði fyrir sig dofna upp og maður hættir að finna fyrir því. þegar þú ert búinn með búk, fætur og hendur þá er aðalmálið að koma þessari “kúlu” í gegnum hálsinn en það tekur smá tíma. Og svo á maður að láta þetta vera smá í hausnum og deyfa allt upp. Næsta stig er síðan að maður eigi að geta fært kúluna útúr hausnum á sér og séð hana fyrir sig og þá á einhvernveginn leiðslan að vera komin. Ég hef þó aldrei komist á það stig. Þótt það að leggjast niður svona og deyfa allann líkamann virki ótrúlega vel og er um leið verulega þægilegt og afslappandi.
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson