Þeir sem ekki vita hvað andaglas er eða vilja fræðast meira um það geta bara lesið korkana hérna á undan.

Ég ætla að segja frá ‘'prakkarastrikum’' sem vinir mínir hafa gert í andaglasi:

Einn vinur minn setti vínber inn í glasið og spurði ‘' viltu fá vínber?’' en auðvitað sagði andinn ‘'nei’'. Vinur minn var greinilega heppinn með anda þcí andinn gæti móðgast því vitanlega getur hann ekki borðað.

Sami vinur minn var í flippkasti og fór í andaglas og spurði ‘' hvernig og hvar var fínasta glas sem þú hefur farið í?’' og andinn svaraði ‘'gullglas í kína’' Svona spurningar eru svosem saklausar :)

Þessi vinur minn er svolítið oft í andaglasi og einu sinni var hann með vinum sínum í andaglasi og þeir spurðu ''hver af okkur er skemmtilegastur og andinn sagði að vinur minn væri í 2.sæti :P

Svona er hægt að grínast í andaglasi en það er ekki æskilegt, maður verður að passa að móðga hann ekki óvart.

Andaglas getur verið spennandi en samt sem áður hættulegt. Alls ekki vera að figta með andaglas ómeðvitaður um afleiðingarnar. Sumir sem fara í andaglas verða klikkaðir og jafnvel fremja sjálfsmorð, aðrir fara að sjá sýnir og líður illa.