Maður lærir ekki dáleiðslu með því að lesa einhverjar leiðbeiningar.
Annars jújú, þetta getur virkað en það þýðir ekki að þetta sé “raunverulegt”, if you catch my drift.
Getur verið að um sé að ræða einskonar placibo áhrif.
Pabbi minn hefur stúderað dáleiðslu af miklu kappi og hefur jafnvel verið að kenna undirstöðuatriði í henni á sínum vinnustað. (Hann er geðlæknir og hefur notað dáleiðslu í meðhöndlun sjúklinga)
Annars er ekki sniðugt að rugla saman klínískri dáleiðslu (sem er notuð í lækningarskyni) og þeirri sem er notuð í skemmtanabransanum.