þetta er ekkert draumur sem þarf að ráða, eflaust bara bull, en þetta er fyrsti draumur sem ég man eftir að hafa dreymt…..

ég var svona 6 ára gamall og dreymdi þá að ég væri í skólanum mínum (laugarnesskóli) og þar voru pétur pa og wanda ( ný búinn að sjá þessa teiknimynd).Allavega þá var allt svona jolly og gaman, sól úti en við vorum stödd inná stigagangi og pétur pan hennti svona lituðum glerkúlum upp í loftið og ég fór að hlægja.
Ég hlóg mjög hátt en þá allt í einu hverfa pétur pan og wanda og allt í einu er orðið svartanótt úti og svona dökk þoka birtist inn á stigaganginum.
Ég hætti um leið að hlægja en þá byrjar dimm og hávær rödd að hlægja (svona evil rödd) ég sá núna nánast ekkert nema reyk og hlægjandi röddin bergmálaði út um allt.
Ég lokaði augunum og þá vaknaði ég..

og þetta er fyrsta minning af draumi sem mig hefur dreymt (og hef btw aldrei verið jafn hræddur á ævi minni og þegar ég vaknaði)

bara að deila þessu með ykku