Mig dreymdi fyrir nokkru síðan að ég væri að fara í skólaferðalag með skólanum sem ég var í og við fórum á eitthvað svona afskekkt hótel sem var hjá einhverjum skógi og einhverjum ökrum. Fyrsta kvöldið fóru ég og 2 vinkonur mínar með einhverjum krökkum sem voru að laumast útí skóg til að drekka og kveiktu bál og allir voru bara að drekka og spjalla og svona en svo fer einn gaur aðeins afsíðis til að pissa. Svo er hann soldið lengi í burtu og fólk er voðalega lítið að pæla í því en taka samt alveg eftir því að hann hafi verið óeðlilega lengi í burtu. Svo heyrist eitthvað þrusk og svo eins og eitthvað hafi fallið í jörðina og allir þagna og líta á staðinn þar sem þetta kom. Það fer einn gaur og tékkar á þessu og finnur gaurinn sem hafði farið að pissa dauðann með risa sár á bakinu og hausnum og blóð útum allt. Það panika allir og fara að hlaupa og öskra og einhver dettur á þetta litla bál sem við höfðum kveikt áður og það slokknar á því og það er svo dimmt að maður sér alls ekki neitt. Svo finn ég vinkonu mína á hlaupum og gríp í hendina á henni og við förum að hlaupa en svo er hún lamin með einhverju og dettur, ég missi takið á henni og hún er dregin í burtu og ég panika bara og held áfram að hlaupa. Svo man ég ekki alveg hvað gerist nákvæmlega en yfir næstu nokkra daga er fólk drepið í rúmunum sínum á næturna þó að herbergin séu læst og enginn staður til að fela sig eða neitt og herbergin öll læst að innan. Við komumst ekkert frá þessum stað því að rútan sem á að sækja okkur kemur ekki fyrr en þegar ferðin er búin og það er alls ekkert símasamband þarna. Svo eru einhverjir kennarar drepnir og restin fer að sækja hjálp og skilur restina af nemendunum eftir þarna til að þrauka þangað til að þau komi aftur. Svo einhvernveginn fattast að þetta eru einhverjir 3 gaurar sem búa undir hótelinu og komast þannig inní öll herbergin og við erum orðin svo fá að þeir smala okkur saman á einhvern gang þar sem við eigum að bíða og þeir læsa okkur þar inni. Ég og einhverjir 2 aðrir ákveða að fela okkur bakvið sófa sem er þarna og þegar gaurarnir koma að ná í hina þá hlaupum við og reynum að finna hjálp, en þá panika allir og það vilja allir fela sig og fara því að við vitum að við eigum ekki eftir að komast þaðan eftir að gaurarnir koma aftur. Svo fara allir að þræta og panika og þá koma gaurarnir aftur og miða á okkur byssum og smala okkur inn í sal þar sem þeir hafa raðað upp stólum í 4 raðir og láta okkur setjast. Svo fara þeir að aflífa fólk bara eitt af öðru. ég og vinkona mín erum í öftustu röðinni og ég bendi henni fram á gang fyrir utan salinn þar sem er borð með dúk og segi henni að þegar ég segi til þá hendum við okkur í jörðina og skríðum eins hratt og við getum fram svo þeir sjái okkur ekki og felum okkur undir borðinu. Þegar enginn þeirra er að fylgjast með okkur lengur þá segi ég til og við hendum okkur í gólfið og drífum okkur undir borðið frammi þar sem við komumst rétt svo alveg í kremju. Við erum nokkurn veginn óhultar því að þegar gaurarnir tækju eftir því að við værum horfnar þá myndu þeir örugglega halda að við hefðum hlaupið útaf hótelinu. Það eina sem ég heyri er skothríð og allt í einu fær vinkona mín byssuskot í hausinn það eina sem ég hugsa er að þeir megi ekki fatta að ég sé þarna undir og halla þess vegna hausnum hennar á öxlina mína svo blóðið leki á mig en ekki gólfið. Þannig endar draumurinn, með að ég sit þarna of hrædd til að hreyfa mig, með blóð úr vinkonu minni lekandi yfir mig.
Veit að þetta er soldið mikið og weird en ég er bara búin að vera að velta því fyrir mér hvort þetta þýði eitthvað?